Description
10ml
Latneskt nafn: Eucalyptus Globulus.
Hluti af plöntu sem notaður er: Lauf og kvistir
Gufueiming
Eucalyptus ilmkjarnaolía er talin vera bakteríudrepandi, sótthreinsandi og verkjastillandi. Eucalyptus ilmkjarnaolía hefur verið notuð til að létta á hósta og kvefi og öðrum öndunarerfiðleikum og er talin draga úr vöðva og liðverkjum og hjálpa til við að bæta sár, bruna og skordýrabit. Í ilmmeðferð er sagt að Eucalyptus auki virkni og orku. Bættu nokkrum dropum í baðvatnið til endurnæringar líkamans. Nokkrir dropar af olíu í ilmolíulampa og ilmdreifara eru sagðir drepa sýkla og loftbornar bakteríur.
Eucalyptus ilmkjarnaolía er eingöngu til útvortis notkunar. Mundu að þynna hana alltaf í burðarolíu þegar hún er notuð á húðina.